Game over
4 athugasemdir
Komiði sæl og blessuð...
Í tilefni dagsins þá ákvað ég að blogga veiiii Allir að klappa
Jæja þetta er síðasti gaurinn minn sem Lýður Oddson.. Því á mánudaginn hefst svo alvarinn og Beggan ver út að vinna aftur eftir 2 ára frí úffff. Það leggst ótrúlega vel í mig að fara að vinna aftur.. Verð samt að segja að það voru blendnar tilfinningar um daginn þegar að LITLA barnið mitt byrjaði á leikskóla.. Finnst hún bara vera nýfædd. Bríet er alveg að fíla leikskólann í tætlur segir bara bæææ og á mamman þá að fara heim.. Fannst voðalega skrítið að vera allt í einu ein heima á morgnana.. Ég nátla fór strax að hugsa hvað ég ætti svo að gera.. hmm.
Sjóarinn að ganga í garð með bryggjuballinu góða og að sjálfsögðu þarf að vera rigning hvað annað ![]()
Ég byrjaði helgina í gær.. Skellti mér á Pál Óskar það var þrusu gaman og auðvitað var sungið og dansað eins og maður ætti lífið að leysa.. Þakka ég Valdísi og Salbjörgu fyrir mjög skemmtilegt kvöld og ekki má gleyma mömmu og pabba sem mætti á kappann mér til mikillar undrunar.. Mamma og pabbi á Palla.. neiiiii það getur ekki verið hahahah. Síðan frammundan er Kappróður... ÁFRAM LAUTARSYSTUR og er ég í því liði. svo er game hjá Guðlaugu og Jóni og mætum við að sjálfsögðu í þvílíku stuði og ekki skemmir það að hún Sigga Ósk frænka mín ætlar að sýna sitt krúttlega face. Síðan er það bara Ball.. það eru svo mörg böll á morgun að ég er bara komin með hálfgerðan valkvíða en hugsa að Á móti sól og Dalton hafa vinninginn þetta árið.
Jæja ætla að fara að elda humar eða Ómar að elda og ég að borða jibbý
Aldrei að vita nema maður rekist á ykkur á morgun jibbýcola ![]()
Beggan kveður með hugann við Mojito
nú hlýt ég að fá klapp á bakið fyrir bloggdugnað..
Nokkuð merkilegt búið að gerast síðan síðast...
Ómzinn þessi elska varð 30 ára. Og í tilefni dagsins fórum við Pétur með kroppinn í óvissuferð sem byrjaði svona.
Hádegismatur á Cici's pizza síðan skunduðum við hjúin í þyrluflug yfir Orlando (Pésinn passaði börnin á meðan) .. Ég verð nú að viðurkenna það að mér leið ekkert alltaf vel þarna í pínu lítilli þyrlu sem hristist og skalf.. Hendur mínar voru orðnar vel sveittar og hjartað hamaðist inní mér. Gvuð hvað mér leið vel þegar að við lentum. En eftir þyrluflugið þá fórum við í Airboat tour að skoða krókudíla.. Ég komst að því hvað Krókudílar eru virkilega mögnuð dýr.. Ólafur Reynir var sko að fíla það. Sjá alla krókudílana synda bara rétt hjá okkur. Bríet var líka að fíla það.. eða svona.. Heyrðist ekki í henni hún hefur kannski verið svona hræd.. Þegar að við vorum búin þar var brunað í Autumn cove að skrúbba af sér skítinn og fara í fínni fötin og síðan var farið á Planet Hollywood að borða... Það var alveg magnað.. þvílík stemming á einum stað. Allavegana þá held ég að dagurinn hafi bara heppnast ótrúlega vel..
Síðan í gær var farið á Miami...
og held ég að ég eigi aldrei á ævi minni eftir að gleyma þeirri ferð.
Allavegana þá lögðum við af stað um 8 og komum heim um 23:30
Þegar að við komum á Miami þá var nátla farið beinustu leið niðrá strönd og ætluðum við aldrei að finna stæði.. eftir um 30 mín. rúnt í leit af stæði þá loksins gátum við farið á röltið. Fengið sér að borða og svo labbað niðrá strönd..
Þar vorum við búin að liggja dágóða stund þegar að strákarnir (stóru) fóru útí sjóinn síðan kemur Pétur til mín og segir Begga þú átt að fara til Ómars og staðfesta svoldið... Ha sagði ég.. Þá sagði Pésalingurinn að hann væri alveg viss um að hr. Vin Diesel væri þarna.. og ég nátla spratt á fætur og tók beivotsið á þetta. þá var hann farinn uppúr og ég nátla ógeðslega fúl. Fór aftur í sólbað og þá sé ég bara að gæjinn er þarna bara rétt hjá okkur.. Ég horfði og horfði og hugsaði.. Það getur bara ekki verið að Dieselinn sé á sömu strönd og ég.. Svo heyrði ég hann tala og hlæja þá varð ég alveg sannfærð um að þetta var kappinn.. Sjitt eigum við eitthvað að ræða þetta... Myndirnar tala sínu máli enda voru teknar nokkar af gæjanum.
Jæja dagurinn í dag var bara leti útí eitt.. Farið út í sólbað um 11 og farið inn um 16. Þvílíkt næs bara.
Frammundan er svo Molldagur, Disney og Aquatica síðan bara heim á laugardaginn..
Ástrós kveður með bros á vör og V.Diesel í huganum að horfa á Borat ![]()
![]()